Þá viltu vera hjá TM

Einkunnarorð TM: Sama hvar þú ert í lífinu – þá viltu vera hjá TM, var helsti innblásturinn fyrir auglýsingaefnið sem við unnum með þeim og hér má sjá sýnishorn af.

Við leiðum helst hugann að tryggingum þegar líf okkar tekur nýja stefnu.  Á augnablikum þegar við þurfum að draga djúpt andann og mæta því sem framundan er. Þegar fjölgar í fjölskyldunni. Þegar börnin flytja að heiman. Jafnvel þegar við  stingum okkur til sunds í sjónum í fyrsta sinn.  

Gott tryggingarfélag horfir á heiminn frá sjónarhorni viðskiptavinarins. Við ákváðum að taka þá hugmynd alveg bókstaflega, og fara í POV stíl, þar sem áhorfandinn horfir með augum aðalpersónunnar á það sem gerist.  

Útkoman varð litlar svipmyndir úr lífi venjulegs fólks að mæta nýrri áskorun, stórri eða smárri. Það dregur andann djúpt og heldur svo áfram til móts við framtíðina. Og TM er með í för.