Terra endurmörkun

Gámaþjónustan er stórt og rótgróið fyrirtæki í umhverfisþjónustu með fjölbreytta starfsemi um allt land. Verkefnin spanna allt frá sorphirðu og endurvinnslu til efnaeyðingar og sölu og leigu á búnaði til sorphirðu, jarðgerðar og vinnuaðstöðu.

Vinna Hvíta hússins hófst með stefnumótun, þar sem kallaðir voru til rýnihópar starfsfólks og hagaðila. Á stefnumótuninni var síðan byggð vinna við nýja ásýnd fyrirtækisins og nýtt nafn.

Eftir umfangsmikla leit var niðurstaðan sú að gefa fyrirtækinu nafnið Terra. Nafnið er latneskt heiti jarðarinnar sem kjarnar vel starfsemina sem öll snýst á einn eða annan hátt um að bæta umgengni okkar við plánetuna sem er heimkynni okkar allra.

Merkið byggir á hringformi sem vísar til jarðarinnar. Hringurinn er ekki lokaður, heldur opinn ferill sem skapar hreyfingu og getur táknað sólarganginn og hringrás efnisins. Einnig er hægt að sjá í merkinu spírað fræ, tákn sjálfbærni og endurnýjunar til framtíðar.

Ákveðið var að blár yrði áfram grunnlitur fyrirtækisins, en blár er litur hreinleika, himins og hafs, sem tónar vel við nýja merkið.

Starfsemi Terra er víðtæk og því þurftu ótal hlutir að fá nýtt útlit dagana fyrir opinberun nýju ásýndarinnar. Hús, bílar, gámar og ílát, auk vefsíðu og annars kynningarefnis. Með góðu skipulagi gengu umskiptin snurðulaust fyrir sig.