Ost alla daga

Þegar við fengum það verkefni að endurvekja auglýsingarnar um Gotta langaði okkur til að gefa honum ferskara yfirbragð og og færa hann nær nútímanum. Við bættum nýrri vídd við frásögnina um ostakrúttið Gotta, sem ferðast um allt eldhúsið á leiðinni á sinn stað, framan á ostaumbúðirnar. Lagið um Gotta var líka tekið upp aftur með nýrri kynslóð söngvara. Verkefnið vakti mikla gleði innan stofunnar og gaman að fá að endurvekja gamlan vin undir textanum sem hefur verið sönglaður af fólki á öllum aldri í áraraðir.