Örninn uppfærður

Loftleiðir eru fyrsta flugfélag Íslendinga, stofnað af þremur ungum og stórhuga frumkvöðlum árið 1944. Örninn frjálsi, sem prýtt hefur ásýnd félagins í 80 ár, er eitt elsta vörumerki Íslands og táknmynd þess mikla ævintýris sem flugsaga Íslands hefur að geyma.  

Starfsemi Loftleiða hefur breyst mikið í gegnum árin. Við fengum það hlutverk að fríska upp á útlit vörumerkisins og aðlaga að nýjum og stafrænum tímum. Örninn heldur áfram að fljúga um loftin blá, nema í nútímalegra formi.