Nýr einkennisfatnaður Icelandair

Það er heilmikið verkefni að uppfæra einkennisfatnað hjá heilu flugfélagi. Icelandair er nýbúið að fara í gegnum slíkt ferli og við fengum að taka þátt.

Okkar hlutverk var að gera nýja einkennisfatnaðinum skil í myndum, bæði ljósmyndum og kvikmynduðu efni. Útkoman var staðall sem við settum upp og auðveldar áhafnarmeðlimum að fylgja reglum og velja sér samsetningar, en eitt af því sem einkennir nýja fatnaðinn er aukinn sveigjanleiki fyrir áhafnarmeðlimi.

Við hönnuðum einnig nýjar nælur og vængi sem áhafnarmeðlimir geta borið, og falla vel að uppfærðri ásýnd Icelandair.