Ný ásýnd fyrir Vildarbörn Icelandair

Sjóður Vildarbarna Icelandair er sjálfstætt starfandi góðgerðarfélag sem gefur langveikum börnum, börnum sem búa við erfiðar aðstæður og fjölskyldum þeirra tækifæri til ferðalaga.  

Við fengum það hlutverk að fríska upp á heildarásýnd sjóðsins. Markmið okkar var að draga fram tilhlökkunina sem fylgir því að halda á vit ævintýranna og að hanna ásýnd sem endurspeglar hjartað í starfseminni – samkennd og samvinnu viðskiptavina Icelandair við að láta drauma barnanna rætast.