Augnablikið endurmarkað

Undanfarin tíu ár hefur einn af hápunktum Menningarnætur verið dansveisla DJ Margeirs. Þar leggur hann undir sig megnið af Klapparstíg ásamt listafólki og úr verður sannkallað götupartý.  

Við fengum að taka þátt í endurmörkun viðburðarins, glæða hann nýju lífi, víkka hann og stækka í samstarfi við Icelandair. Innblásturinn var fenginn úr sápukúlum, litríkum og glaðlegum sem tákna líka hið fljótandi augnablik sem staldrar stundum alltof stutt við. Á fyrsta Moment-inu kom saman fjöldi fólks á öllum aldri undir sápukúlufylltri partýhvelfingu og upplifði kraft andartaksins og nú í nýju útliti.