Arion Premía

Premía er þjónustuleið Arion banka ætluð efnameiri viðskiptavinum sem þurfa sérhæfða og persónulega einstaklingsþjónustu.

Til að skapa þjónustunni skýra ásýnd innan vörumerkis Arion banka fórum við þá leið að nota náttúruleg verðmæt efni með áberandi og auðþekkta áferð: gull, eðalvið og silki. Allt efni sem eru nýtt í glæsilega og vandaða hönnun.

Grunntónn Premíu er gylltur og brúnn, sem gefur tilfinningu fyrir gæðum og varanleika, einhverju sem er gegnheilt og stenst tímans tönn, eykur jafnvel verðmæti sitt með tímanum.